Gústaf efstur í forkeppni ungmennaflokks
Forkeppni ungmennaflokks í fjórgangi er lokið. Þar stóðu Gústaf Ásgeir Hinriksson og Naskur frá Búlandi efstir með 7,10, í öðru sæti voru þær Birgitta Bjarnadóttir og Blika frá Hjallanesi. En þau þriðju voru Edda Hrund Hinriksdóttir og Hængur frá Hæl. Arna Ýr Guðnadóttir á eftir að keppa í þessum flokk en búast má við því að hún keppi fyrir fimmganginn í opna flokknum í dag.
1. Gústaf Ásgeir Hinriksson/Naskur frá Búlandi 7,10
2. Birgitta Bjarnadóttir/Blika frá Hjallanesi 1 7,03
3. Edda Hrund Hinriksdóttir/Hængur frá Hæl 6,90
4. Kári Steinsson/ánægja frá Egilsá 6,87
5. Kári Steinsson og Prestur frá Hæli 6,77
6. Julia Katz/Asi frá Lundum 6,73
7. Jóhanna Margrét Snorradóttir/Kubbur frá Læk 6,57
8. Arnór Dan Kristinsson/Þytur frá Oddgeirshólum 6,47
9. Ásta Björnsdóttir/Tenór frá Sauðárkróki 6,10
10 Edda Rún Guðmundsdóttir/Gljúfri frá Bergi 6,07
11-12 Andri Ingason/Björk frá Þjóðólfshaga 5,93
13 Arna Ýr Guðnadóttir/Þróttur frá Fróni 0,00