Hægt að skrá inn ný lið
Þá fer að styttast í fyrsta mót Húnvetnsku liðakeppninnar en það verður laugardaginn nk, 8. febrúar, og verður að vera búið að skrá á miðnætti miðvikudagsins 5. febrúar. Skráning er á mailið: [email protected] Keppt verður í fjórgangi í 1. flokki, 2. flokki, 3. flokki og flokki 17. ára og yngri (fædd 1997 og seinna) Það sem koma þarf fram er nafn og kennitala knapa, lið, hestur, IS númer og upp á hvora hönd á að ríða. Það verða tveir inn á í einu og er prógrammið í forkeppni, hægt tölt – fegurðartölt – fet – brokk – stökk og er stjórnað af þul. En úrslit verða riðin eins og venjulega, hægt tölt – brokk – fet – stökk – fegurðartölt.
Skráningargjaldið er 2.000 fyrir fullorðna og 1.000 fyrir unglinga 17 ára og yngri og verður að greiða inn á reikning 0159-15-200343 kt. 550180-0499 áður en mót hefst. Hægt verður að skrá ný lið til leiks fram að miðnætti miðvikudagsins 5. febrúar.
Aðgangseyrir er 1.000 en frítt fyrir 12 ára og yngri.
A landsliðshópur Íslands