Hækkun lágmarka til umræðu

  • 21. desember 2012
  • Fréttir
Hækkun lágmarka til umræðu

Fagráð hefur samþykkt breytingu á lágmörkum til afkvæmasýninga frá og með árinu 2013. Lágmarksaðaleinkunn kynbótamats hækkar í öllum flokkum.

 
Samkvæmt samþykkt Fagráðs frá fundi þess í október mun lágmörk til verðlauna fyrir afkvæmi hækka örlítið.
 
Lágmarsaðaleinkunn kynbótamats stóðhestar með 1. verðlaun fyrir afkvæmi verður 120 stig og verða þeir að eiga 20 dæmd afkvæmi. Áður þurftu stóðhestarnir að uppfylla annað tveggja: 118 stig í aðaleinkunn kynbótamats og amk. 15 dæmd afkvæmi.
 
Minni breyting er á lágmörkum fyrir stóðhesta með heiðursverðlaun fyrir afkvæmi, en nú verða þeir vera með 120 stig í aðaleinkunn kynbótamats og 50 dæmd afkvæmi. Áður þurftu þeir 118 stig.
 
Einnig hefur lágmarkseinkunn hækkað fyrir hryssur með heiðursverðlaun fyrir afkvæmi. Frá árinu 2013 þurfa þær að vera með 118 stig í aðaleinkunn kynbótamats og 5 dæmd afkvæmi en áður var lágmarkið 116 stig.
 
Samþykktin var gerð með fyrirvara um umsögn kynbótafræðinga.
 
Uppfært:
Á Fagráðsfundi sem haldinn var sl. mánudag var hins vegar ákveðið í samráði við kynbótafræðingana að geyma breytingar þar til nýtt kynbótamat liggur fyrir, en það mun taka tillit til gangráðsins svokallaða.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link