„Hafði strax góða tilfinningu fyrir honum“
Daníel og Dalvar á kynbótasýningu á Rangárbökkum. Ljósmynd: Aðsend
Alls voru þeir 114 talsins, sex vetra gömlu stóðhestarnir, sem sýndir voru í fullnaðardómi á Íslandi í ár. Meðaltal aðaleinkunnar þeirra í hæsta dómi var 8,20 og hlutu 87 þeirra 8,00 eða hærra í aðaleinkunn og 1.verðlaun.
Hæst dæmdi stóðhestur ársins í þessum aldursflokki er Dalvar frá Efsta-Seli, sem hlaut 9,04 í aðaleinkunn á vorsýningu á Rangárbökkum og stóð jafnframt efstur í sínum aldursflokki á Landsmóti í sumar með 9,01 í aðaleinkunn. Hann hlaut fyrir sköpulag 9,06 með úrvalseinkunnina 9,5 fyrir fótagerð, hófa og prúðleika. Fyrir hæfileika hlaut Dalvar 9,02 með 9,5 fyrir skeið og samstarfsvilja. Með þessum stórkostlega árangri er Dalvar hæst dæmdi sex vetra stóðhestur frá upphafi dóma.
Ræktendur Dalvars eru þeir Daníel Jónsson og Hilmar Sæmundsson en eigendur eru Josephine Williams og Efsta-Sel ehf. Það var Daníel Jónsson sem sýndi Dalvar og hann svaraði spurningum blaðamanns Eiðfaxa um söguna á bak við Dalvar, árangurinn og framtíðina.

Tekið við Kolfinnsskildinum fyrir Dalvar frá Efsta-Seli á Landsmóti 2026. Ljósmynd: Freydís Bergsdóttir. Ásbjörn Helgi Árnason
Nefndur í höfuðið á Landsmótssigurvegara
Faðir Dalvars er Adrían frá Garðshorni á Þelamörk og móðir er Lóa frá Efsta-Seli. „Þegar við ákváðum að para saman Lóu og Adrían var markmiðið að rækta fallegan, alhliða gæðinga með góða eiginleika. Við teljum að það hafi tekist ansi vel og erum afar ánægð með útkomuna“
Daníel segir frá því að nafnið Dalvar sé enginn tilviljun. „Árið 1994 vann ég A-flokk á Landsmóti á hestinum Dalvari frá Hrafnstöðum. Þegar að þessi foli fæddist hafði ég strax mjög góða tilfinningu fyrir honum. Hann var brúnn, rétt eins og Dalvar gamli, og því lág eiginlega beinast við að gefa honum sama nafn.“

Daníel og Dalvar á Landsmóti. Ljósmynd: Freydís Bergsdóttir
Ekki stórslysalaust fyrsta ár
Tilurð Dalvars og fyrstu mánuðirnir voru vægast sagt viðburðaríkir. „Upphaflega stóð til að Lóa færi í fósturvísaflutning, en talið var að það hefði ekki tekist og okkur var sagt að hún væri geld. Veturinn eftir kom Lóa því inn til þjálfunar og eftir því sem leið á hana tókum við eftir því að hún var nokkuð ólík sjálfri sér og farin að bæta talsvert á sig. Að lokum kom í ljós að hún var fylfull.“

Dalvar sem folald
Lóa kastaði svo glæsilegu brúnu hestfolaldi um sumarið og virtist allt leika í lyndi til að byrja með. „Þegar Dalvar var um fjögurra mánaða gamall tókum við hins vegar eftir því að Lóa mjólkaði lítið sem ekkert og Dalvar leit ekki nógu vel út. Við ákváðum því að taka hann undan henni og senda hann til Auðar í Krumshólum.“
Fyrsti veturinn í Krumshólum reyndist heldur ekki áfallalaus. „Hann veiktist tvisvar og í annað skiptið fékk hann mjög slæma hrossasótt. Sem betur fer náði hann sér að fullu og það er ekkert á honum að sjá í dag, enda orðinn stóglæsilegur hestur. Eftir dvölina hjá Auði fór Dalvar í uppeldi að Skíðbakka III hjá Erlendi Árnasyni og síðar meir til Ársæls í Eystra-Fróðholti, þar sem hann var bæði tveggja og þriggja vetra.“

Dalvar og feðgarnir Dagur Nói og Daníel
Þegar að tamningu kom komu gæðin fljótt í ljós. „Dalvar hefur frá upphafi verið einstaklega geðgóður og þægilegur í allri umgengni. Hann var mjög auðveldur í tamningu og sýndi strax einstaklega hrein gangskil. Hann hefur verið að bæta sig jafnt og þétt á milli ára, enda stór og mikill hestur sem þurfti sinn tíma til að styrkjast og þroskast.“
Daníel er eðlilega gríðarlega stoltur af framgöngu hestsins í sumar. „Við erum ótrúlega ánægð með hann og finnst hann alveg einstakur gæðingur. Hann átti frábært sumar og hefur sýnt okkur hversu mikið býr í honum. Það verður því afar spennandi að fylgjast með honum halda áfram að þroskast og dafna á komandi árum.“

Daníel og Dalvar á Landsmótinu. Ljósmynd: Aðsend
Nýr eigandi Dalvars er Josephine Williams og er stefnt að því að hann verði áfram hér á landi til ársins 2028, jafnvel 2029, áður en hann heldur utan. „Við erum bæði stolt og þakklát fyrir að hafa fengið að fylgjast með þessum einstaka hesti frá fyrstu tíð og hlökkum mikið til að sjá hvað framtíðin ber í skauti sér fyrir Dalvar,“ segir Daníel að lokum.
10 hæst dæmdu 6 vetra stóðhestarnir í ár
- Dalvar frá Efsta-Seli – 9,04
- Svartur frá Vöðlum – 8,76
- Miðill frá Hrafnagili – 8,75
- Víkingur frá Hofi I – 8,72
- Svipur frá Tjaldhólum – 8,67
- Aris frá Auðsholtshjáleigu – 8,63
7–8. Fleygur frá Geitaskarði – 8,61
7–8. Heljar frá Skálakoti – 8,61
9. Feykir frá Stóra-Vatnsskarði – 8,59
10–11. Njörður frá Hrísakoti – 8,58
10–11. Viktor frá Hamarsey – 8,58
Opið fyrir umsóknir í Suðurlandsdeildina
Rýnihópur um framtíðarsýn Landsmóta