Hafnarfjarðameistaramót Sörla 5.-9.maí

  • 2. maí 2021
  • Fréttir

Frá móti í Sörla

Hafnarfjarðameistaramót Sörla verður haldið á Hraunhamarsvellinum skv. dagskrá dagana 5. – 9. maí.
Mikilvægt er að passa uppá 2 metra regluna hvort sem er keppendur eða áhorfendur.
Mótið verður opið öllum keppendum.
Mótanefnd áskilur sér rétt til að fella niður eða sameina flokka/greinar ef ekki er næg þátttaka.
Takmörkun þáttöku í hverri grein er við 20 keppendur.
Skráning á mótið er hafin á Sportfeng og stendur til miðnættis þriðjudaginn 4. maí.
Þar sem ekki er hægt að skrá polla yngri en 9 ára í Sportfeng, viljum við biðja ykkur að senda okkur nafn polla og nafn hests á [email protected] og taka from hvort pollinn verði ríðandi eða teymdur.
Keppnisgreinar eru eftirfarandi :
·        Meistaraflokkur: Tölt T1, Tölt T2, Fjórgangur V1, Fimmgangur F1, Gæðingaskeið PP1
·        1 flokkur: Tölt T3, Tölt T4, Fjórgangur V2, Fimmgangur F2. Gæðingaskeið PP1
·        2 flokkur: Tölt T3, Tölt T7, Fjórgangur V2, Fjórgangur V5, Fimmgangur F2
·        Ungmenni: Tölt  T3, Tölt T4, Fjórgangur V2, Fimmgangur F2.
·        Unglingar: Tölt  T3, Tölt T7, Fjórgangur V2, Fimmgangur F2
·        Börn: Tölt T3, Tölt T7, Fjórgangur V2, Fjórgangur V5
·        100 m skeið P2.
·        Gæðingaskeið PP1  21árs og yngri.
·         Pollar: Boðið verður upp á pollaflokk
Skráningagjöld eru eftirfarandi:
·        Barnaflokkur og unglingaflokkur: 4000 kr.
·        Ungmennaflokkur, 2. flokkur, 1. flokkur og meistaraflokkur: 5000 kr.
·        Gæðingaskeið – 5000 kr
·        100m skeið – 3500 kr
Sörlafélagar þurfa að hafa greitt félagsgjöldin sín til að hafa keppnisrétt á mótinu.
Allar afskráningar og fyrirspurnir skulu berast á  [email protected]
Dagskrá verður auglýst siðar.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link