Hafnarfjarðameistaramót Sörla

  • 28. apríl 2020
  • Fréttir

Bríet Guðmundsdóttir og Kolfinnur frá Efri-Gegnishólum

Ákveðið hefur verið að halda Hafnarfjarðameistaramót Sörla á Hraunhamarsvellinum skv. dagskrá dagana 14. – 17. maí.

Til að mótið geti farið fram verðum við að treysta á að keppendur og áhorfendur vinni með okkur að fylgja öllum reglum almannavarna sem munu gilda á þessum tíma.
Mikilvægt er að passa uppá 2 metra regluna hvort sem er keppendur eða áhorfendur.
Verið er að vinna í og að öllum líkingum verður streymt frá mótinu.

Mótið verður opið öllum keppendum.
Skráning á mótið mun standa yfir frá 1. maí og til miðnættis föstudaginn 8.maí.

Ef keppendur óska eftir að skrá eftir að skráningarfresti lýkur er greitt tvöfalt skráningargjald.

Skráning fer fram í gegnum Sportfeng.
Mótanefnd áskilur sér rétt til að fella niður eða sameina flokka/greinar ef ekki er næg þátttaka.
Takmarkað verður þáttöku og í hverri grein eru 20 keppendur leyfðir.
Keppnisgreinar eru eftirfarandi :
Meistaraflokkur: T1, T2, V1, F1, Gæðingaskeið PP1
1 flokkur: T3, T4, V2, F2. Gæðingaskeið PP1
2 flokkur: T3, T7, V2, F2
Ungmenni: T3, T4, V2, F2.
Unglingar: T3, V2, F2
Börn: T3. T7, V2
100.m skeið P2.
Gæðingaskeið PP1 21árs og yngri. (Gæðingaskeið ungmenni í skráningarkerfi)

Skráningagjöld eru eftirfarandi:

Barnaflokkur og unglingaflokkur: 4000 kr.
Ungmennaflokkur, 2. flokkur, 1. flokkur og meistaraflokkur: 5000 kr.
Gæðingaskeið – 5000 kr
100m skeið – 3500 kr

Allar afskráningar og fyrirspurnir skulu berast á [email protected]

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link