Hagstæðast í forsölu
Nú stendur forsala aðgöngumiða sem hæst á Landsmót hestamanna í Reykjavík í sumar en miðasalan fer fram á vefnum www.landsmot.is. Anna Lilja Pétursdóttir er miðasölustjóri Landsmóts hestamanna og segir hún miðasöluna fara vel af stað.
„Okkar erlendu gestir eru jafnan í fyrra fallinu að kaupa sér miða, enda hefjast þeir fyrr handa við að skipuleggja sumarið en við hér heima. Þeir byrjuðu að kaupa sér miða, Reykjavíkurpassa og stúkusæti strax í október. Íslendingarnir eru heldur afslappaðri en hafa tekið við sér síðustu vikurnar, enda forsalan í fullum gangi.“
Anna Lilja segir mun hagstæðara að festa kaup á miðum í forsölu og setur upp eftirfarandi dæmi:
Hjón með einn ungling sem ætla á Landsmót og vera í hjólhýsastæði með rafmagni. Ef viðkomandi er félagi í LH/BÍ og með N1 kortið.
Verð í forsölu (til 15.maí 2012):
2 x 10.000 kr vikupassi fullorðinn = 20.000 kr
1 x 4.000 kr vikupassi unglingur = 4.000 kr
Hjólhýsastæði = 13.000 kr
______________________________________
Alls: 37.000 kr
Verð eftir 15.maí
2 x 15.000 kr vikupassi fullorðinn = 30.000 kr
1 x 5.000 kr vikupassi unglingur = 5.000 kr
Hjólhýsastæði = 15.000 kr
______________________________________
Alls: 50.000 kr
„Hagsýnir tilvonandi gestir Landsmóts ættu því að bregðast skjótt við og kaupa miðana núna. Nýtt kortatímabil hefst til að mynda 26. apríl næstkomandi,“ segir Anna Lilja og snýr sér aftur að miðasölukerfinu en bætir við að í gang sé að fara forsöluleikur þar sem hægt sé að vinna ferð með Iceland Express út í heim. Dregið verði þann 15. maí úr færslunum í miðasölukerfinu á tímabilinu.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH