Halar inn milljónir fyrir Hreggvið

  • 6. desember 2010
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Íslendingur í Svíþjóð þjálfar eigin kerrubrokkara

Veðreiðar hafa aldrei náð sér á strik á Íslandi svo um sé talandi. Þótt mikil spenna hafi verið fyrir kappreiðum á ákveðnum tímabilum, hafa fjárhæðirnar sem veðjað er um aldrei verið háar. Í mesta lagi nokkrir fimmþúsundkallar á hlaup. Öðru máli gegnir víða í útlöndum, þar sem upphæðirnar geta orðið firna háar, jafnvel tugir milljóna á ári á fljótustu hrossin.

En Íslendingar kunna hins vegar alveg tökin á kappreiðahrossum og ná árangri ef þeir eru bara í rétta umhverfinu. Hreggviður Eyvindsson, sem lengi hefur búið í Svíþjóð og rekur hrossabú þar, aðallega með íslensk hross, á sér áhugamál. Sem er að þjálfa útlenskan kerrubrokkara, hryssuna Belindu Sign, sem er í hans eigu. Kappreiðar kerrubrokkara eru afar vinsælar í Svíþjóð og þar er veðjað háum fjárhæðum. Hreggviður situr að vísu ekki sjálfur í kerrunni á kappreiðabrautinni, en á heiðurinn að þjálfun hryssunnar. Sem er ekki svo lítill, vegna þess að Belinda er ekki fimmþúsundkalla meri. Á þessu ári hefur hún halað inn 757 þúsund sænskar krónur, sem eru 12-13 milljónir íslenskra króna. Sjá www.horseexport.is

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link