Hannibal efstur á sýningunni
Þá er kynbótasýningunni á Hólum lokið en yfirlitinu lauk nú fyrr í dag. Alls voru 63 hross sýnd á sýningunni og þar af hlutu 58 fullnaðardóm. Af þessum 58 hrossum hlutu 39 fyrstu verðlaun.
Dómarar á sýningunni voru þau Þorvaldur Kristjánsson, Heiðrún Sigurðardóttir og Friðrik Már Sigurðsson.
Hannibal frá Þúfum hækkaði einkunn sína fyrir fegurð í reið og hægt stökk úr 9,0 í 9,5 sem gerir 8,68 í aðaleinkunn. Hann er því þriðji hæst dæmdi klárhestur heims á eftir þeim Arthúri frá Baldurshaga (8,69) og Kveik frá Stangarlæk (8,76). Hannibal var hæst dæmdi hestur sýningarinnar en hann var sýndur af ræktanda og eiganda sínum, Mette Mannseth.
Efsta hryssa sýningarinnar er Gjöf frá Hofi á Höfðaströnd en hún hlaut 8,60 í aðaleinkunn. Fyrir sköpulag hlaut hún 8,07 og fyrir hæfileika 8,88 sem er hæsta hæfileikaeinkunn sýningarinnar. Gjöf var sýnd af Þórarni Eymundssyni.
Sindri frá Lækjamóti er fallegasti hestur sýningarinnar með 8,82 fyrir sköpulag en Sindri var sýndur af Ísólfi Líndal Þórissyni. Sindri hlaut fyrir hæfileika 8,35 og í aðaleinkunn 8,52.

Sindri frá Lækjamóti undan Ský frá Skálakoti og Rödd frá Lækjamóti, 6 vetra. Sýnandi Ísólfur Líndal Þórisson. Mynd: Lækjamót
Agnar Þór Magnússon hækkaði tvo fjögurra vetra fola í dag einn af þeim var Valíant frá Garðshorni á Þelamörk sem stendur nú efstur fjögurra vetra fola en fyrir yfirlit var hann með 7,91 fyrir hæfileika en eftir yfirlitið 8,31 fyrir hæfileika, fyrir sköpulag hlaut hann 8,61 sem gerir 8,42 í aðaleinkunn. Hann hækkaði fyrir tölt, skeið, fegurð í reið og fet.
Hrossin á sýningunni raðað eftir aðaleinkunn
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH