Hans kom, sá og sigraði
Mótinu á Svínavatni er lokið og er óhætt að segja að Hans Þór Hilmarsson hafi verið maður mótsins en það var fátt um mótsvör í B flokknum og í töltinu. Hans var á Síbil frá Torfastöðum í báðum greinum og sigraði þær báðar með yfirburðum 9,21í einkunn í b flokknum og 8.50 í einkunn í A flokknum. Síbil var valin glæsilegasti hestur mótsins en hún hlaut m.a. 10 fyrir yfirferð í töltinu.
Húnvetningurinn Tryggvi Björnsson sigraði A flokkinn á glæsihryssunni Þyrlu frá Eyri en þau hlutu 8,74 í einkunn. Veður og færi var eins og best verður á kosið og dagskráin gekk vel og snuðrulaust fyrir sig. Hestakosturinn magnaður og þá sérstaklega í B-flokki þar sem hann hefur sennilega aldei verið sterkari.
B flokkur úrslit
Sæti Knapi Hestur Samtals
- Hans Þór Hilmarsson Síbil frá Torfastöðum 9,21
- Jakob Sigurðsson Nökkvi Skörðugili 8,86
- Ísólfur Líndal Vaðall frá Akranesi 8,80
- Gunnar Arnarsson Frægð frá Auðsholtshjáleigu 8,79
- Hlynur Guðmundsson Bliki annar frá Strönd 8,69
- Arnar Bjarki Sigurðarson Kaspar frá Kommu 8,66
- Sæmundur Þ Sæmundsson Lyfting frá Fyrirbarði 8,60
- Magnús Bragi Magnússon Birta frá Laugardal 8,59
- Helgi Eyjólfsson Stimpill frá Vatni 8,54
A flokkur úrslit
Sæti Knapi Hestur Samtals
- Tryggvi Björnsson Þyrla frá Eyri 8,74
- Ísólfur Líndal Gandálfur frá Selfossi 8,57
- Elsa Hreggviðsdóttir Mandal Ársól frá Bakkakoti 8,51
- Líney María Hjálmarsdóttir Kunningi frá Varmalæk 8,49
- Logi Þór Laxdal Vörður frá Árbæ8,40
- Jakob Sigurðarson Ægir frá Efri-Hrepp 8,39
- Elvar Einarsson Mánadís frá Akureyri 8,30
- Gunnar Arnarson Hreggviður frá Auðholtshjáleigu 8,29
Tölt úrslit
Sæti Knapi Hestur Samtals
- Hans Þór Hilmarsson Síbil frá Torfastöðum 8,50
- Magnús Bragi Magnússon Óskasteinn frá Íbishóli 7,70
- Þór Jónsteinsson Gína Þrastarhóli 7,50
- Jakob Sigurðsson Kilja frá Grindavík 7,40
- Gunnar Arnarsson Frægð frá Auðsholtshjáleigu 7,13
- Tryggvi Björnsson Blær Kálfholti 6,87
- Sæmundur Þ Sæmundsson Lyfting frá Fyrirbarði 6,83
- Skapti Steinbjörnsson Blálilja frá Hafsteinsstöðum6,63
Styttu haustið með EiðfaxaTV