Hápunktar frá slaktaumatöltinu í Equsana deildinni
Keppt var í slaktaumatölti í Equsana deildinni í síðustu viku en hér er hægt að sjá myndband frá hápunktunum kvöldið en myndbandið er fengið frá vinum okkar á Alendis.is
Úrslitin voru mjög spennandi en fyrir slaka tauminn var Sævar Örn Sigurvinsson efstur á Huld frá Arabæ og voru þau með nokkuð gott forskot á hina. Slaki taumurinn gekk hins vegar ekki upp og voru mistökin þar dýrkeypt. Slaki taumurinn hefur tvöfalt vægi og getur því skipt sköpum hvernig hann gengur upp. Á slaka taumnum voru þeir Hermann og Gustur á heimavelli og uppskáru hæstu einkunnina fyrir það atriði. Tryggðu sér gullið með 7,12 í einkunn. Í öðru sæti endaði Kolbrún á Sigurrós með 7,08 í einkunn og í þriðja Ríkharður á Auðdísi með 6,92 í einkunn.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH