Haustfundur HEÞ 29. nóvember

  • 28. nóvember 2012
  • Fréttir
Haustfundur HEÞ 29. nóvember

Minnt er á haustfund HEÞ sem fer fram fimmtudaginn 29. nóvember.

 
„Fundurinn verður haldinn í Hlíðarbæ og hefst kl. 20:30.  Að þessu sinni verða tvö áhugaverð erindi á dagskrá: Sigríður Björnsdóttir dýralæknir hrossasjúkdóma hjá MAST fjallar um áverka á keppnishrossum og Guðlaugur Antonsson fer yfir árið í hrossaræktinni. Á fundinum verður tilkynnt um val á ræktunarbúi ársins á félagssvæðinu. 6 bú eru tilnefnd að þessu sinni. Þau eru í stafrófsröð:  Efri-Rauðilækur,  Komma , Litla-Brekka,  Ós, Sauðanes og Sámsstaðir.  Ræktendur (félagsmenn HEÞ) þriggja efstu hrossa í hverjum flokki á árinu hljóta viðurkenningu. Auk þess mun efsta hross eftir aldursleiðréttingu (skv. viðmiðun BÍ) hljóta sérstök verðlaun. Allt áhugafólk um hrossarækt er hvatt til að mæta. Kaffiveitingar í boði samtakanna,“ segir í tilkynningu frá HEÞ.
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link