Heimsmeistaramótið 1997
Fyrir mótið í Noregi var mikið talað um val Sigurðar Sæmundssonar, sem þá var landsliðseinvaldur, á þeim Vigni Siggeirssyni á Þyrli frá Vatnsleysu og Styrmi Árnasyni á Boða frá Gerðum. Hann valdi þá báða eftir úrtöku og var hann mikið gagnrýndur fyrir það. Þetta voru þó pörin sem skiluðu okkur gulli í tölti, Vignir á Þyrli, og Styrmir vann gull í fjórgangi á Boða. Vegna þessarar niðurstöður var talið að vald landsliðseinvaldsins ætti eftir að aukast í framtíðinni.
Önnur gull voru Logi Laxdal í 250 m. skeiðinu á Sprengi-Hvell frá Efsta-Dal II , Sigurbjörn Bárðarson í gæðingaskeiði og fimmgangi á Gordon frá Stóru-Ásgeirsá. Fyrstu tveir titlar Sigurbjörns og Gordon en þeir áttu eftir að verða fleiri. „Þar með unnu Íslendingarnir allt sem máli skiptir hér. Hér á landi leggja menn ekki mikið upp úr fimikeppni og slaktaumatölti og því má segja að landinn hafi náð í allt sem stefnt var að“ (Tíminn, 1997, 148. tbl.)
Heimsmeistaramótin höfðu verið fram að þessu eiginlega keppni á milli tveggja þjóða, Íslands og Þýskalands, sem unnu að þessu sinni 5:1. Aðrar þjóðir voru þó að sækja í sig veðrið og skiptust gullin á fjórar þjóðir að þessu sinni. Karly Zingsheim vann fimmganginn fyrir Þjóðverja á Feyki von Rinkscheid, Austurríkismaðurinn Doris Kainzbauer vann hlýðnikeppnina á Kopari frá Hrepphólum og hin sænska Ylva Hagander vann slaktaumatöltið á Mekki frá Varmalæk.
Eftir mótið í Noregi var mikið talað um hvað liðsheildin hjá íslenska landsliðinu hefði verið góð og spilað stóran þátt í árangri liðsins. Annað atriði sem er sagt hafa spilað stóran þátt í árangrinum var að knapar neyttu ekki áfengis á meðan mótinu stóð.
Gullin fóru til eftirfarandi landa
- Ísland 5 gull
- Þýskaland 1 gull
- Svíþjóð 1 gull
- Austurríki 1 gull
Hér fyrir neðan er myndband frá mótinu. Góða skemmtun !
Viðamikil umfjöllun um öll Evrópu- og heimsmeistaramótinu birtist í Eiðfaxa sumar sem gefin var út á árinu. Hægt er að gerast áskrifandi á [email protected]
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH