Heimsmeistarinn Guðmundur Einarsson mætir
Guðmundur Einarsson, heimsmeistari og Norðurlandameistari í skeiðgreinum, mun koma til Íslands í haust og miðla af þekkingu sinni á hátíðarsýningu Félags Tamningamanna, sem haldinn er í tilefni af 40 ára afmæli félagsins.
Árangur Guðmundar á skeiðbrautinni undanfarin ár hefur verið gríðarlega góður og vakið mikla athygli. Það er Félagi Tamningamanna mikill heiður að fá Guðmund á sýninguna og eru hestamenn hvattir til að nýta sér þetta einstaka tækifæri til að læra um þjálfunaraðferðir hans og reiðmennsku.
Afmælishátíð Félags Tamningamanna verður haldin þann 11.september í Reiðhöllinni í Viðidal í Reykjavík. Dagskráin verður þétt skipuð, mikið verður um að vera, svo takið daginn frá.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH