Heimsókn í hesthús – Frábær aðstaða í Hjarðartúni
Hrossaræktarbúið Hjarðartún er staðsett í Hvolhreppi rétt norðan við Hvolsvöll. Þar stunda Kristín Heimisdóttir og Bjarni Elvar Pjetursson hrossarækt auk þess að ríða út sér til gagns og gamans.
Fjórir tamningamenn starfa á búinu en það eru þau Hans Þór Hilmarsson, Arnhildur Helgadóttir, Klara Sveinbjörnsdóttir og Auðunn Kristjánsson.
Blaðamaður Eiðfaxa var á ferðinni um daginn, þrælsprittaður, og tók Hans Þór tali sem sagði okkur frá aðstöðunni auk þess að rölta í gegnum hesthúsið.
Hægt er að fræðast meira um Hjarðartún á glæsilegri heimasíðu með því að smella á vefslóðina hér fyrir neðan.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH