Helga Una Íþróttamaður USVH
Viðar frá Skör, knapi Helga Una Björnsdóttir Mynd: Nicki Pfau
Helga Una Björnsdóttir hefur verið kjörin Íþróttamaður USVH 2022. Stjórn USVH sendi frá sér eftirfarandi tilkynningu;
„Helga keppir í Meistaradeild Líflands sem er sterkasta innanhúss mótaröðin á Íslandi. Hún hefur verið í landsliðshóp Íslands í nokkur ár og var valin kynbótaknapi ársins 2022.
Árangur Helgu Unu 2022:
Meistaradeildin
Gæðingafimi 7. sæti.
Slaktaumatölt 5. sæti.
1. sæti tölt T1 á Selfossi
3. sæti tölt T1 á Íslandsmóti
2. sæti fjórgangur V1 á Landsmóti
B úrslit í b flokki á landsmóti (endaði í 10. sæti.)
1. sæti á Norðurlandamótinu í A flokki gæðinga“
Hér gefur að líta 2. og 3. sæti í kjöri á Íþróttamanni USVH 2022:
2. sæti: Eysteinn Tjörvi Kristinsson – hestamaður
3. sæti: Dagbjört Dögg Karlsdóttir – körfuknattleikskona
Stjórn USVH óskar öllum þessum íþróttamönnum til hamingju með frábæran árangur árið 2022.“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH