Hersir & Laxnes f. Lambanesi – Notkunarstaðir 2013.

  • 18. júní 2013
  • Fréttir
Hersir & Laxnes f. Lambanesi - Notkunarstaðir 2013.

Hersir verður til afnota að Stafholtsveggjum 2 fram að FM, eftir FM verður Hersir til afnota á Ljárskógum á vegum hrossaræktarsamb. Dalamanna (www.dalir.is). Laxnes verður til afnota að Stafholtsveggjum 2 bæði fyrir og eftir FM.

Hersir f.Lambanesi, jarpnösóttur. 
Rúmur alhliða hestur með háar, skrefmiklar hreyfingar og þjálan vilja. Hefur hlotið 1.verðlaun fyrir bæði byggingu og hæfileika 4.vetra. Þar af 9 fyrir tölt, bak og lend, 8,5 fyrir vilja og geð, fegurð í reið og samræmi. 

Hersir er gerðarlegur og fótahár hestur með flotta reisingu, háar herðar og sívalvaxin. Hersir stóð efstur í flokki 4.vetra stóðhesta á nýafstaðinni kynbótasýningu í Hafnafirði. Elding móðir Hersirs er 1.verðl. hryssa með 8,26 f. hæfileika, út af henni er einnig Vissa f. Lambanesi sem stóð efst fyrir hæfileika í flokki 4.vetra hryssna á LM2011 með 8,31 f.hæfileika.

Laxnes f.Lambanesi, rauðstjörnóttur. 
Skrefmikill alhliðahestur með mikinn fótaburð og ásækin vilja, vaxandi 4.vetra hestur. Laxnes er jafnvígur á gangi og hlaut fyrir hæfileika m.a. 8 fyrir tölt, skeið, stökk og fegurð í reið og 8,5 fyrir vilja og geðslag og hlaut þar af leiðandi 1.verðlaun fyrir hæfileika. 

Laxnes er léttbyggður, fótahár og sívalvaxin hestur með m.a. 9 fyrir samræmi. Sveifla f. Lambanesi móðir Laxnes er mikil kynbótahryssa, út af henni hafa komið fimm 1.verðlauna hross.

Upplýsingar um notkun: Báðir hestarnir verða til afnota að Stafholtsveggjum 2 fram að FM, (15 mín. akstri frá Borgarnesi). Eftir FM verður Hersir á vegum hrossaræktarsambands Dalamanna (www.dalir.is).

Verð: 60.000+vsk. Með einni sónaskoðun og hagagjaldi.

Allar nánari uppl: Birna s. 699-6116, Agnar s.899-8886 eða [email protected] www.sporthestar.com –www.facebook.com/sporthestar

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link