Hestadagar í Skagafirði
Föstudagskvöldið, 28.apríl fer fram lokakvöld Meistaradeildar KS þar sem keppt verður í tölti og skeiði. Þar mun koma í ljós hverjir standa uppi sem sigurvegarar Meistaradeildar KS 2023 en það má svo sannarlega segja að það stefni í gríðarlega sterkt og spennandi lokakvöld þar sem einstaklings -og liðakeppnin er galopin og geta nokkrir knapar gert sig líklega að sigri – en allt þarf að ganga upp!
Kennslusýningar verða í Svaðastaðahöllinni á laugadaginn þar sem reiðkennarefni Háskólans á Hólum, hestabraut FNV & reiðmeistararnir Mette Mannseth og Þórarinn Eymundsson koma fram.
Tekið til kostanna 2023 fer fram í reiðhöllinni Svaðastöðum laugardaginn 29. apríl nk. kl. 20:30 – Húsið opnar klukkan 19 þar sem hægt verður að kaupa mat og drykki.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Skráning opin á Metamót Spretts