HESTAR – List og líf Péturs Behrens

  • 23. desember 2020
  • Fréttir

Listaverkabókin HESTAR er safn teikninga og málverka Péturs af hestum og landslagi á rúmlega 200 blaðsíðum og með hverju verki fylgir sérsniðin lýsing listamannsins á viðfangsefni og tækni. „Ég hef haldið um 20 einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga,“ segir Pétur. „Ég var búinn að safna og taka saman verk sem ég vildi gjarnan sýna breiðara hópi manna en sýningarsalur tekur og þá kviknaði hugmyndin, að gefa út bók.“

Á vef Horses of Iceland er að finna áhugaverða umfjöllun um bókina HESTAR og um höfundinn, Pétur Behrens, en þess má til gamans geta að Pétur var einn af stofnendum Eiðfaxa árið 1977.

Pétur Behrens á Skugga frá Hvítárbakka, ásamt Ragnari Hinrikssyni og Reyni Aðalsteinssyni á Fjórðungsmóti á Hellu árið 1976.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link