Hestar með hegðunarvandamál
Þriðja árs nemar Hólaskóla auglýsa eftir hrossum með hegðunarvandamál, í verkefnið „Lausnir“ vikuna 16.-20. maí.
Umsjónarmaður hestsins kemur með hann heim í Hóla á mánudeginum og sýnir vandamálið sem hann vill fá lausn við. Hesturinn er síðan þjálfaður í þrjá daga af nemendum.Umsjónarmaður sækir hann svo aftur á föstudegi og fær leiðbeiningar um áframhaldandi þjálfun, ásamt myndbandi sem sýnir ferlið skref fyrir skref.
Verkefnið er eigendum að kostnaðarlausu.
Umsókn með lýsingu á vandamálinu sendist á [email protected] eða í síma 899-6196 (Tonhild) og 848-0066 (Birna)
Við munum velja úr umsóknum um þá hesta sem við teljum henta best í verkefnið.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH