Hestarnir mættir til Austurríkis – video
Ekki er laust við að það örli fyrir eftirvæntingu fyrir Heimsmeistaramótinu í Austurríki, en nú eru aðeins 6 dagar þangað til dagskrá þess hefjist.
Eins og sjá má á meðfylgjandi myndskeiði frá aðstandendum mótsins er langt ferðalag okkar hesta lokið, þeir eru komnir heilir að höldnu á mótsvæðið. Nú fá þeir nokkra daga til að venjast þessum nýjum aðstæðum, bæði hlýrra og rakara loftslagi.
Mótssvæðið er allt hið glæsilegasta eins og sjá má og mun ekki væsa um gesti mótsins en mótshaldarar búast við um 25.000-30.000 gestum í St. Radegund í næstu viku.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH