Hestaþing Loga
Hestaþing hestamannafélagsins Loga verður haldið um verslunarmannahelgina 4.-5. ágúst nk.:
„Þá líður að Hestaþingi Loga en hefð hefur skapast fyrir því að það sé haldið ár hvert um verslunarmannahelgina. Það verður haldið í Hrísholti 4-5. ágúst. Við viljum minna sérstaklega á opnu kappreiðarnar en þær eru að verða einstakur viðburður á Íslandi. Keppt er í 150 og 250 m skeiði, 300 m stökki , 300 m brokki og 100 m fljúgandi skeiði. Einnig minnum við á opna töltmótið en dagskráin er sem hér segir:
Áætluð dagskrá:
Laugardagur 4. ágúst Forkeppni og úrslit í gæðingakeppni Loga.
Kl. 10:00 B flokkur gæðinga
Unglingaflokkur
Barnaflokkur
A flokkur gæðinga.
Kl.12:00 Hlé.
Kl.12:30 Úrslit í B flokki gæðinga
Úrslit í unglingaflokki
Úrslit í barnaflokki
Úrslit í A flokki gæðinga
Sunnudagur 5. ágúst. Opin töltkeppni
Kl. 10:00 Forkeppni í tölti, fullorðnir
Forkeppni í tölti unglingar (14-17 ára)
Forkeppni í tölti, barnaflokkur (13 ára og yngri)
B-úrslit í tölti, fullorðnir
B-úrslit í tölti, unglingar
B-úrslit í tölti, barnaflokkur (ef þátttaka yrði það mikil)
Kl. 12:30 Hópreið
Pollaflokkur
Verðlaunaafhending í öllum flokkum nema tölti.
Knapaverðlaun og glæsilegasti hestur mótsins.
Kl.13:00 B-úrslit í tölti, fullorðnir
B-úrslit í tölti, unglingar
B-úrslit í tölti, barnaflokkur (ef þátttaka verður það mikil)
Kl.14:00 Kappreiðar (opnar)
150 m skeið
250 m skeið
300 m brokk
300 m stökk
100 m fljúgandi skeið (Skráningagjald kr. 2.500.- sem fer í peningaverðlaun
í 1. til 3ja sætið)
Kl.15:00 A-úrslit í tölti, barnaflokkur
A- úrslit í tölti, unglingar
A- úrslit í tölti, fullorðnir
Áætluð mótslok eru kl:16:30.
Tekið er á móti skráningum í allar greinar dagana 30. júlí til miðnættis 1.ágúst.
Ath. Ekki er tekið við skráningum eftir auglýsta skráningardaga.
Hólmfríður Ingólfsdóttir sími 863-7134, [email protected] , Guðrún Magnúsdóttir sími 486-8944, [email protected], Guðný Höskuldsdóttir, sími 895-6507, [email protected]
Athugið: Öll skráning í gæðingakeppnina og töltið verður að vera með grunnskráningarnúmeri hrossins og kennitölu knapa.
Skráningargjald í tölt er kr. 2.500.- fyrir fullorðna, kr. 1.500.-fyrir unglinga (14-17 ára) og kr. 1.200,- fyrir börn (13 ára og yngri)
Félagar fjölmennið og takið þátt!“ segir í tilkynningu frá Loga.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
LH auglýsir eftir mótshöldurum