Hestaþing Snæfellings
Hestaþing Snæfellings verður haldið í Stykkishólmi laugardaginn 21. ágúst nk. og hefst kl. 10. Verður um að ræða keppni í A- og B-flokki gæðinga og flokki barna, unglinga og ungmenna. Einnig verður kept í tölti og gæðingaskeiði fullorðinna og tölti 17 ára og yngri.
Skráningar á mótið skulu berast á netfangið [email protected] í síðasta lagi miðvikudaginn 18. ágúst kl. 24:00.
Skráningargjald er kr. 2000 fyrir hverja skráningu i gæðingakeppninni, gæðingaskeiði og tölti, en kr. 500 fyrir börn og unglinga. Við skráningu þarf að gefa upp IS númer hests og GSM síma þess er skráir. Hestar þurfa að vera grunnskráðir i WorldFeng.
Skráningargjald leggist inn á reikning númer 0191-26-000876, kt. 440992-2189, um leið og skráð er.
Stjórn Snæfellings.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH