Hesthúsbruni í Mosfellsbæ

  • 12. nóvember 2010
  • Fréttir
Hesthúsbruni í Mosfellsbæ

Hesthúseiningarnar sem brunnu í nótt voru í eigu Herdísar Hjaltadóttir og Sveins Inga Grímssonar hrossaræktanda..
Engin hross voru í hluta Herdísar eða Lillu eins og hún er kölluð af flestum en Sveinn Ingi var hinsvegar með töluvert af trippum á tamningaraldri inni og eitthvað af folöldum, meðal annars inni í hlöðu og má það teljast mikil mildi að unnt var að bjarga þeim. Einhverja þeirra sem unnu að björgun hrossanna þurfti að frlytja á slysadeild vegna reykeitrunar.
Vindur stóð þannig að reykinn lafgði vestur og suður yfir efra hverfið þannig að hægt var að flytja hross í neðri hluta hverfisins þar sem eldri húsin eru.
Mikið af hestafólki úr hestamannafélaginu var á staðnum í nótt til aðstoðar við björgunarstörf.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link