Hesti bjargað úr leðjupytt
Mynd/Newspics - Rex Feature
Fréttamiðillinn Dailymail birtir átakanlegar myndir af björgun hests úr leðjupytt.
Segir þar frá Nicole Graham sem var í reiðtúr ásamt dóttur sinni á strönd nálægt Geelong í Suður-Ástralíu. Hestarnir þeirra sukku skyndilega í leðju við flæðarmálið. Kom Nicole dóttur sinni og reiðskjóta hennar fljótt frá en hesturinn Astró festist kyrfilega í leðjunni og þurfti þriggja tíma björgunaraðgerðir til að ná hrossinu aftur á fast land.
Á meðan flæddi að ströndinni og var því björgunin dramatískt kapp við tímann, þar sem Nicole sat sem fastast hjá hestinum og veitti honum styrk og stuðning, eins og sjá má á myndunum sem birtast með fréttinni sem hægt er að nálgast hér.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH