Hið árlega Skírdagskaffi Sörla
„Loksins getum við haldið okkar árlega skírdagskaffi Hestamannafélagsins Sörla á fimmtudaginn 14. apríl 2022 að Sörlastöðum.
Hróður þessarar veislu hefur borist víða og stöðugt fleiri gestir mæta til leiks.
Við hvetjum alla til að koma og gleðjast með okkur Sörlafélögum.
Aðgangseyrir er kr 2000 fyrir fullorðna og frítt fyrir 12 ára og yngri.
Eins og síðustu ár veðrur Skírdagshappdrættið á sínum stað og því tilvalið að næla sér í miða. Vinningarnir eru ekki af verri endanum því yfir 40 glæsilegir folatollar og fullt af öðrum flottum vinningum eru í boði. Einungis er dregið úr seldum miðum.
Húsið opnar kl. 14:00 og Sörlafélagar ríða á móti gestum að vanda.“
Allir velkomnir
Skemmtinefnd hestamannafélagsins Sörla
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH