Hinrik knapi ársins hjá Fáki
Á uppskeruhátíð Fáks sl. helgi var Hinrik Bragason valinn knapi Fáks 2011. Hinrik á að baki farsælt ár eins og fram kemur í frétt frá Fáki:
“Hinni var í landsliði Íslands á heimsmeistaramótinu í Austurríki og varð hann í 4. sæti í tölti og 5. sæti í fjórgangi. Hann varð Íslandsmeistari í fjórgangi og í 5 sæti í tölti á Íslandsmótinu og samanlagður sigurvegari í fjórgangsgreinum. Á Reykjavíkurmóti Fáks varð Hinni í 1. sæti í tölti opnum flokki, 1. sæti í fimmgangi opnum flokki, samanlagður sigurvegari í fjórgangsgreinum opnum flokki og í 4. Sæti í gæðingaskeiði meistaraflokki. Á Gæðingamóti Fáks varð hann í 2. sæti í tölti og 3. sæti í A-flokki gæðinga. Ekki má gleyma landsmótinu en þar hampaði Hinni hinum eftirsótta sigri í A-flokki gæðinga og var sá sigur aldrei í hættu. Einnig var hann valinn gæðingaknapi ársins og kom m.a. tveimur hestum í A-úrslit á landsmótinu á Vindheimamelum í sumar.
Hinni landaði fleiri sigrum og verðlaunum á öðrum mótum í sumar og óskum við honum til hamingju með frábæran keppnisárangur og hlökkum til að sjá hann á brautinni á næsta keppnistímabili.”
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH