Hjálpsamir Harðarfélagar-

  • 13. nóvember 2010
  • Fréttir
Hjálpsamir Harðarfélagar-

Þau Herdís Hjaltadóttir og Sveinn Ingi Grímsson eiga svo sannarlega góða að í hestamannafélaginu Herði…

Í fyrradag hóf hópur fólks þegar niðurrif og hreinsun brunarústanna af hesthúsum þeirra og í gær var haldinn fundur þar sem starfið var skipulagt. Verkefnið er hafið, en það er endurbygging hesthúsanna sem brunnu. Stefnt er að því að búið verði að hreinsa til og rífa það sem rífa þarf um næstu helgi þannig að bygging geti hafist þá. Til stendur að hafa félagsheimilið opið og að þar verði sjálfboðaliðum veittur matur og kaffi.
Það er notalegt að hugsa til þess hve fólk þjappast saman þegar einhverjir verða fyrir áföllum og þurfa hjálp.
Herdís eða Lilla sem er hennar nafn svona í umhverfinu var í stóru viðtali við Eiðfaxa á síðasta ári og kom þar fram eins og lesendur muna eftir að hún átti mikið safn allskyns muna sem hún hafði viðað að sér og fólk gefið henni. Þannig var hesthúsið hennar eins og hálfgert „sögusetur“ og voru þessir munir flestir henni mikils virði. Þessu tapar Lilla nú öllu og verður að byrja aftur frá grunni að byggja upp safn en hún var mjög stolt af safninu sínu og þótti vænt um marga gripi sem þar leyndust.
 
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link