HM2021 – Þorgeir Guðlaugsson verður yfirdómari mótsins
Will Covert og Þorgeir prúðbúnir við dómgæslu á HM2019 Mynd:Hulda G. Geirsdóttir
Stjórn Feif hefur gefið það út að Þorgeir Guðlaugsson verði yfirdómari á HM íslenska hestsins sem fram fer í Herning á næsta ári og honum til aðstoðar verður Will Covert.
Stjórn Feif sér um að velja yfirdómara fyrir heimsmeistaramótið að minnsta kosti 10 mánuðum áður en mótið fer fram.
Þeir Þorgeir og Will eru reynslu miklir dómarar sem fá það mikilvæga verkefni að fara fyrir þeim íþróttadómurum sem mynda þann hóp sem dæmir íþróttakeppni mótsins.
Heimsmeistaramót íslenska hestsins fer eins og áður segir fram í Herning í Danmörku dagana 1.-8.ágúst. Allir hestaáhugamenn krossa nú putta og vona að hægt verði að halda mótið og að Covid19 muni ekki setja strik í reikninginn. Búast má við því að Ísland sendi sterkt lið til mótsins og ætli sér að fylgja góðum árangri frá síðasta heimsmeistaramóti eftir.
Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu mótsins.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH