Hópreið í Gjármót á laugardag

  • 26. maí 2011
  • Fréttir
Hópreið í Gjármót á laugardag

Ferðanefnd  Andvara boðar til hópreiðar sem fyrr segir laugardaginn 28. maí. Lagt verður  af stað frá félagsheimili Andvara kl. 14. 

„Hér er um að ræða hina árlegu veisluferð Andvara félaga og annarra  matar og gleðipinna,  allir eru að sjálfsögðu velkomnir með, ungir sem aldnir. Riðið verður  sem leið liggur frá félagsheimilinu um Heimsenda inn í Heiðmörk og með Hjöllum í Hjalladal í Gjármót. Áætlaður reiðtími er ca. 45mín  hvora leið.

Í Gjármótum  verður boðið upp á glóðar grilluð lambalæri með öllum þeim kræsingum sem við eiga og að sjálfsögðu  gegn vægu gjaldi. Einnig kjúklingur frá KFC fyrir þá sem það vilja. Sumarið er komið og engin ástæða til að láta sig vanta í slíka ferð, það er  spáð  snjólausum og öskulausum degi. Sjáumst  hress og kát,“ segir í tilkynningu frá ferðanefnd Andvara. 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link