Hörður hlaut Hvatningarverðlaun ÖBÍ
Hestamannafélagið Hörður hlaut til Hvatningarverðlauna Öryrkjabandalags Íslands sem afhent voru á alþjóðadegi fatlaðra, laugardaginn 3. desember sl.
Félagið vann í flokki fyrirtækja/stofnana, fyrir frumkvöðlastarf í hestaíþróttum fatlaðra barna og unglinga.
Hörður stóð í fyrra í fyrsta sinn fyrir reiðnámskeiðum ætluðu fólki með fötlun, hreyfi- og þroskahömlur og er nú að hefja annað starfsár sitt.
“Það sem þau upplifa helst er aukið sjálfstæði, aukna getu og færni á hestbaki og í samskiptum við hestana. Ótrúlegt er að sjá framfarir hjá þeim í hverjum einasta tíma, bæði hvað varðar sjálfstraust og færni á hestunum og ekki síst aukin hreyfifærni og liðleiki,” sagði Auður G. Sigurðardóttir í viðtali sem birtist hér í október.
Til hamingju Hörður!
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
LH auglýsir eftir mótshöldurum