Höskuldargerði langt komið-

  • 10. nóvember 2010
  • Fréttir
Höskuldargerði langt komið-

Minnisvarði um Höskuld Eyjólfsson á Hofsstöðum í Borgarfirði er í byggingu. Um er að ræða hestagerði og „söðlabúr“..

sem stendur við kirkjuna í Reykholti. Aðeins er eftir lokafrágangur  og eftir er að reisa minnismerkið sjálft við gerðið en það er unnið af myndlistamanni.
Gerðið lítur út fyrir að hafa staðið þarna alla tíð, svo vel sem það er fellt inn í umhverfið.
Það er Guðlaugur Óskarsson fyrrverandi skólastjóri á Kleppjárnsreykjum sem hefur annast fjáröflun verkefnisins en hann hefur boðið fólki DVD disk sem hann gerði af tveimur eldri hestamönnum á gæðingum sínum, þeim Gísla Höskuldssyni á Hauk 29 vetra gömlum og Ingimar Sveinssyni á Pílatusi 26 vetra gömlum. Nokkrir diskar eru eftir og geta þeir sem hafa áhuga á að taka þátt i þessu góða verkefni haft samband við Guðlaug í síma 8615971 eða sent honum tölvupóst [email protected]
Hér eru nokkrar myndir af gerðinu og söðlabúrinu.
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link