Hrímnir sigraði
Meistardeild Ungmenna og Top Reiter 2023 lauk í kvöld laugardagskvöld 8.apríl. Öll keppniskvöldin hafa farið fram í HorseDay höllinni Ingólfshvoli og þökkum við þeim kærlega fyrir samstarfið í vetur.
Liðakeppnin í Meistaradeild Ungmenna og Top Reiter var gríðarlega spennandi allt til loka og fyrir síðasta keppniskvöldið munaði einugis hálfu stigi á efstu tveimur liðunum.
En það var lið Hrímnis sem bar sigur úr bítum 2023 með einungis sex og hálfu stigi.
Lokaniðurstaðan í liðakeppninni er eftirfarandi.
Lið Stig
Hrímnir 409,5
Hjarðartún 403
Narfastaðir/Hófadynur 344
Hamarsey/Miðás 295,5
E.Alfreðsson 292,5
HR Níels 222
Límtré-Vírnet 207,5
Tøltsaga/Böggur ehf 163,5
Suður-Vík 150,5
Hestbak 141,5
Rax ehf 79
Vill stjórn Meistardeildar Ungmenna og Top Reiter þakka öllum liðum, knöpum, aðstandendum og öllum þeim sem hjálpuðu til við að gera þessa deild það sem hún er í dag, gríðarlega mikilvæg fyrir öll ungmenni sem eru að keppa í fremstu röð hér á landi.
Öllum sjálboðaliðum þökkum við kærlega fyrir hjálpina í vetur, hún er ómetanleg.
Samsstarf við Meistaradeild þökkum við kærlega.
Dómurum og starfsfólki þökkum við samstarfið.
Einnig þökkum við Top Reiter þann gríðarlega stuðning sem deildin hefur fengið frá þeim og Top Reiter gaf sigurvegara í hverri keppnisgrein gjöf.
Öðrum styrktaraðilum þökkum við kærlega fyrir stuðningin, án ykkar væri þetta
ekki hægt og eru þeir eftirfarandi.
Margrétarhof
SBJ Réttingar
Fáka-Far
Fákshólar
Vesturkot
Icelandic Horseworld
Lagnafóðrun
Fasteignasalan Gimli
Gangmyllan
Hestvit
Sunnuhvoll
Export Hestar Eysteins Leifs.
Pula – hrossaræktarbú
Kerhólshestar – hrossaræktarbú
Blikk ehf Selfossi
Þökkum kærlega fyrir okkur
Stjórn MDU
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH