Hringur frá Gunnarsstöðum tekur á móti hryssum

  • 25. júní 2013
  • Fréttir
Hringur frá Gunnarsstöðum tekur á móti hryssum

Hringur frá Gunnarsstöðum verður í girðingu í Vesturkoti í sumar. Verð undir Hring er 50.000 kr. Hringur er 4 vetra undan heiðursverðlaunahestinum Hróðri frá Refsstöðum og Andvaradótturinni, Ölmu Rún frá Skarði.

Hringur er klárhestur og hefur hlotið 8,11 fyrir byggingu og 8,08 fyrir hæfileika. Hann hefur hlotið 9,0 fyrir brokk, stökk, fegurð í reið og vilja og geðslag.

Áhugasamir geta haft samband við Þórarinn í síma 846 1575

Dómur Hrings: 

Aðaleinkunn: 8,09

 

Sköpulag: 8,11

Kostir: 8,08

Höfuð: 7,5
   6) Fínleg eyru   G) Merarskál   

Háls/herðar/bógar: 8,5
   1) Reistur   6) Skásettir bógar   

Bak og lend: 8,5
   2) Breitt bak   4) Löng lend   

Samræmi: 8,5
   4) Fótahátt   5) Sívalvaxið   

Fótagerð: 8,0
   2) Sverir liðir   

Réttleiki: 8,0

Hófar: 7,5
   D) Lágir hælar   

Prúðleiki: 7,0

Tölt: 8,5
   2) Taktgott   3) Há fótlyfta   

Brokk: 9,0
   1) Rúmt   3) Öruggt   5) Há fótlyfta   

Skeið: 5,0

Stökk: 9,0
   1) Ferðmikið   5) Takthreint   

Vilji og geðslag: 9,0
   2) Ásækni   4) Þjálni   

Fegurð í reið: 9,0
   4) Mikill fótaburður   

Fet: 7,0
   D) Flýtir sér   

Hægt tölt: 8,5

Hægt stökk: 8,0
 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link