Hrísholtsleikar
Hestamannafélagið Logi heldur hinar árlegu kappreiðar sínar í Hrísholti næstkomandi sunnudag og hefst dagskrá kl 16.
Keppt verður í eftirtöldum greinum.
250 m skeið
150 m skeið
100 m skeið
300 m brokk
300 m stökk
Skráning á staðnum milli 15 og 16 engin skráningagj,aðgangur er ókeypis. Boðhlaup er fyrirhugað(útfært og auglýst á staðnum) Veitingar verða með hefðbundnu sniði.. Og óhefðbundnu. Einnig verður teymt undir börnum og hvetjum við foreldra til að mæta með börnin og lofa þeim að bregða sér á bak. Loga félagar verða með barnþæg hross á staðnum. Útreiða nefnd Loga hvetur sem flesta til að koma ríðandi,safnst saman í Tungnaréttum og ríða síðan fylktu liði á mótsvæðið við
Hrísholt.
Allir velkomnir.
Útreiða og kappreiðanefndir Loga.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH