Hrossakjötsveisla Limsfélagsins

  • 5. janúar 2016
  • Fréttir
Lismfélagið kaupir reiðhöll.

„Hin árlega hrossakjötsveisla Limsfélagsins verður haldin laugard. 9. janúar í félagsheimli Fáks. Ræðumaður kvöldsins verður hinn landskunni vatnareiðmaður Hermann Árnason

Matseðill:
Saltað og reykt hrossakjöt með gamla laginu
Bjúgu / kartöflustappa
Kartöflur, uppstúf, rauðkál og grænar

Forsala aðgöngumiða í Guðmundarstofu, félagsheimili Fáks fimmtudagskvöldið 7. jan kl. 19:00 – 22:00. Verð kr. 5.000 í forsölu en 5.500 við dyrnar. Nánari upplýsingar veitir Helgi s: 698 8370

Limsfélagið hefur í hyggju að gera kauptilboð í reiðhöllina í Víðidal og því mun allur ágóði af samkomuni fara í nýstofnaðan Limshallarsjóð.“

Með kveðju,
Limsfélagið og kynbótanefnd Fáks. 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link