Hrossamarkaður í Hrímnishöllinni
Dagana 20. og 21. ágúst verður hrossamarkaður í Hrímnishöllinni á Varmalæk að er fram kemur í tilkynningu.
„Nú á að minka lagerinn fyrir veturinn og verður boðið upp á gæðinga og gæðingsefni frá ungum og ótömdum trippum upp í fullmótuð hross. Í boði verða efni í kynbóta og keppnishross. Reiðhross, sýndar hryssur og ungir kynbótagripir svo eitthvað sé nefnt. Öll verða hrossin úr ræktun Björns á Varmalæk eða út af ræktun hans. Sjón er sögu ríkari. Nú er um að gera að líta við og prútta við karlinn já og eða taka lagið með honum.“
Frekari upplýsingar verður að finna á www.varmilaekur.is
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Áhugamannadeild Norðurlands áfram á EiðfaxaTV