„Hrossarækt er ólæknandi della“

  • 1. maí 2021
  • Fréttir

Þau Guðrún Rut og Þorlákur stunda hrossarækt af miklu kappi mynd: Einkasafn

Ræktunarbúið Skagaströnd í Austur-Húnavatnssýslu skipar sér í röð fremstu hrossaræktarbú landsins en árið 2020 var það eitt af þeim 12 búum sem hlutu tilnefningu sem ræktunarbú ársins, af fagráði í hrossarækt. Þá var búið útnefnt sem hrossaræktarbú Austur-Húnavatnssýslu árið 2020.

Ræktunin hófst þegar þau Sveinn Ingi Grímsson og Líney Jósefsdóttir hófu að rækta hross út af Sunnu frá Skagaströnd, sem er ættmóðir hrossanna frá Skagströnd og hlaut hún m.a. heiðursverðlaun fyrir afkvæmi árið 2014. Sunna átti 17 afkvæmi um dagana og komu 13 þeirra til kynbótadóms og 12 þeirra hlutu 1.verðlaun.

Nú er Þorlákur, sonur þeirra Sveins og Líneyjar, tekin við ræktunarstarfinu ásamt konu sinni, Guðrúnu Rut Hreiðarsdóttur. Blaðamaður Eiðfaxa hafði samband við þau með það að markmiði að fræðast meira um ræktunina að Skagaströnd. Fyrsta spurning er sú hvað það er við hrossarækt sem heillar þau? Hrossarækt er ólæknandi della sem heillar á svo marga vegu, að sjá nýfætt folald og fylgja því eftir alla leið í dóm og jafnvel inn á landsmót er stórskemmtileg upplifun.“ 

Margir hrossaræktendur aðhyllast einhverjar sérstakar ræktunarlínur, er það eins með ykkur? Við aðhyllumst nú enga sérstaka línu í ræktuninni en það hefur verið sneitt hjá þessum yfirverðlögðu tískuhestum sem flest allir virðast ætla nota og hefur það bara gengið ágætlega hjá okkur samt.“

 

Sveinn Ingi og Líney með Sunnu frá Akranesi á milli sín

 

70 hross til á búinu

Hvað eru mörg hross til á búinu og hversu mörg þeirra eru á járnum á Skagaströnd í vetur?
„Við eigum um 70 hross í heildina, hryssur, unghross í uppeldi, kynbótahross í þjálfun og svo nokkra reiðhesta sem eru á járnum á sumrin.  eru um 10 hross á járnum hér hjá okkur2-3 í tamningu fyrir aðrasvo hross sem á að sýna eða keppa á sem eru frá okkur. Guðrún Rut sér alfarið um þjálfun og tamningar hér, Þorlákur skreppur einstaka sinnum á bak en það stendur til að bæta úr því að lokinni grásleppuvertíð. Fjögur hross eru í þjálfun annars staðar í okkar eigu og fimm hross sem við vitum að til stendur að sýna líka í kynbótadómi sem aðrir eiga héðan.“

Guðrún Rut og Rebekka frá Skagaströnd

Alls voru átta hross sýnd í fullnaðardómi frá búinu á síðasta ári en töflu með þeim má sjá hér fyrir neðan.

Nafn Sköpulag Hæfileikar Aðaleinkunn
Skuggi 8.6 8.67 8.65
Klakinn 8.72 8.53 8.6
Skjár 8.53 8.17 8.3
Þerna 8.31 8.15 8.21
Stefna 8.01 8.29 8.19
Hrefna 8.48 7.96 8.14
Rebekka 7.97 8.09 8.05
Styrkur 7.99 7.8 7.87

Skuggi er sonur Smára og Þrumu frá Skagaströnd. Hér á Landssýningu árið 2020 setin af Eyrúnu Ýr Pálsdóttur. Mynd: Louisa Hackl

Mikill floti 1.verðlauna hryssa

Eins og áður segir er það Sunna frá Akranesi sem er stofnhryssa ræktunarinnar en hverjar eru helstu ræktunarhryssur dagsins í dag og undir hvað fóru þær síðasta sumar?
„Helstu ræktunarhryssurnar eru systurnar undan Sunnu frá Akranesi þær Þjóð, Þruma, Þorlfríður og Þökk og dætur þeirra Þórdís og Skvísa. Þetta eru allt 1.verðlauna hryssur sem og Gloría frá Krossum. Einnig eru, við að halda nokkrum ósýndum merum sem við þekkjum vel og viljum sjá hverju það skilar. Við notuðum Arthúr og Sólon frá Skáney aftur og Ramma frá Búlandi og þá bræður Skugga og Skjá frá Skagaströnd.“ Aldeilis glæsilegur floti hryssna sem til eru á búinu en Þjóð hlaut einmitt heiðursverðlaun fyrir afkvæmi árið 2020. Hvað finnst þeim einkenna afkvæmi hennar? Þjóð hlaut heiðursverðlaun sl. haust,  hvað einkennir afkvæmi hennar helst að ykkar mati? Það sem einkennir afkvæmi Þjóðar er að þau eru öll svo ljúf og meðfærileg allt eitthvað svo auðvelt eins og hún var sjálf enda fékk hún 8,55 fyrir hæfileika 4.vetra gömul og veit ég ekki betur en að hún sé hæfileikaríkasta 4.vetra dæmda afkvæmi Orra frá Þúfu fyrr og síðar og það er titill að bera.“ Þjóð er undan Orra frá Þúfu og Sunnu frá Akranesi. Hún hlaut sjálf í aðaleinkunn 8,34 og þar af 8,55 fyrir hæfileika einungis 4.vetra gömul á Landsmóti árið 2006.  Hversu mörg folöld eru þið þá að fá á ári og undan hverju eru þau? Á síðasta ári fengum við níu folöld, tvö undan Arthúri frá Baldurshaga eitt undan Sóloni frá Skáney og sex undan Skjá frá Skagaströnd. Mest heillandi af þeim í dag er hestur undan Þórdísi og Skjá sem fékk nafnið Kraftur.“ Segja þau Þorlákur og Guðrún en eru þau búinn að ákveða hvaða stóðhestar verða notaðir í ár? „Okkur langar að nota 20-30 stóðhesta í sumar en sennilega verða þeir nú ekki nema 3-4 sem verður ákveðið á síðustu stundu þegar þar að kemur.“

Heiðursverðlaunahryssan Þjóð frá Skagaströnd

Hvernig lýst ykkur á komandi mánuði í hestamennskunni? „Það er frekar bjart yfir þessu og okkur hlakkar mikið til kynbótasýninga ársins og svo styttist í fyrsta folald ársins.“ Töluverð aukning varð í hrossasölu á síðasta ári, funduð þið fyrir aukningu? „Við höfum selt nánast allt sem er til sölu hjá okkur og neitað nokkrum boðum í gripi sem eru einfaldlega ekki til sölu.“

Nú styttist í kynbótasýningar og þá spennu og eftirvæntingu sem þeim fylgir. Hvernig lýst ykkur á kynbótakerfið eins og það er í dag? „Kynbótakerfið er fínt og við vonum að Landssýning eins og var síðasta sumar verði haldin aftur það var stórskemmtilegur dagur og algjör veisla að sjá rjómann úr hrossaræktinni á einum degi“

 

Guðrún Rut og Þorlákur á góðri stund mynd: Einkasafn

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link