Bændasamtök Íslands Fundarferð um landið heldur áfram

  • 6. mars 2025
  • Tilkynning
Almennir fundir í fundarröð stjórnar hrossabænda og Fagráðs í hrossarækt um málefni hrossaræktarinnar halda nú áfram í mars.

Helstu málefni sem tekin verða fyrir á fundunum eru m.a. eftirfarandi:

  • Málefni hrossabænda
  • Notkun keppnisdóma í kynbótamatinu
  • Þróun kynbótadómsins
  • Hrossaræktin almennt

Eins og sjá má verður margt áhugavert á döfinni.

Fulltrúar hrossabænda og fagráðs, þau Nanna Jónsdóttir formaður stjórnar hrossabænda og fagráðs og Þorvaldur Kristjánsson, hrossaræktarráðunautur verða á ferðinni.

Fundirnir verða haldnir á eftirfarandi stöðum:

7. mars föstudagur – Eyjafjörður – Reiðhöllin á Akureyri kl. 15:00.
8. mars laugardagur – Skagafjörður – Tjarnarbær Sauðárkrókur kl. 14:00.
9. mars sunnudagur – V-Húnavatnssýsla – Víðihlíð kl. 13:00.
9. mars sunnudagur – Borgarnes – Félagsheimili Borgfirðings kl. 18:00.

Hvetjum hestamenn og hrossaræktendur til að fjölmenna á fundina og nýta tækifærið til að kynna sér verkefnin og leggja sitt til málanna.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar