Opið fyrir umsóknir í 1. deildina
Katla Sif Snorradóttir og Sæmar frá Stafholti unnu gæðingalistina í 1. deild Hringdu Mynd: Gunnhildur Ýrr
Undirbúningur fyrir komandi keppnistímabil í 1. deildinni í hestaíþróttum er formlega hafinn. Stjórn ásamt hestamannafélaginu Sörla hefur nú fest niður keppnisdaga vetrarins ásamt því að opna fyrir skráningar og umsóknir liða.
Keppnisdagar tímabilsins eru eftirfarandi:
- 19. febrúar
- 5. mars
- 19. mars
- 2. apríl
- 16. apríl
- 24. apríl
Sjö lið með öruggt sæti
Alls eiga sjö lið rétt á áframhaldandi þátttöku í deildinni á grundvelli árangurs síns á síðasta keppnistímabili. Lið hér fyrir neðan þurfa að staðfesta þátttöku sína fyrir komandi tímabil og tilgreina um leið liðseiganda, liðsstjóra og skipan liðsmanna.
- Fornusandar
- Sportfákar
- Hrímnir
- Kidka/hestakofi
- Vindás/stóðhestaval
- HorseDay
- Hringdu
Opið fyrir umsóknir fyrir ný lið
Einnig er opið fyrir umsóknir nýrra liða sem óska eftir þátttökurétti. Ný lið skulu senda inn umsókn þar sem fram kemur fyrirhuguð liðsskipan og hver sé eigandi liðsins. Umsóknarfrestur, bæði fyrir ný lið og staðfestingar á sætum núverandi liða, er til 8. nóvember 2026.
Allar umsóknir og upplýsingar skulu sendast á netfangið: [email protected]
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson