Hrossaræktarráðstefna fagráðs framundan
Hin árlega hrossaræktarráðstefna fagráðs verður haldin sunnudaginn 28 nóvember og byrjar klukkan 13:00 í Félagsheimili Fáks. Aðgangur að ráðstefnunni er ókeypis og allt áhugafólk um hrossarækt er hvatt til að mæta. Ráðstefnan verður einnig streymt og sér Alendis um þá útsendingu
Á dagskrá er umfjöllun yfir hrossaræktarárið, niðurstöður kynbótamatsins og verðlaunaveitingar. Auk þess munu Ulrike Nurnus og Susanne Braun kynna fyrstu niðurstöður verkefnis síns um faraldsfræðilega könnun á kynsjúkdómum hjá íslenskum hestum og Heiðrún Sigurðardóttir um erfðafræðilegan grunn gangtegunda íslenska hestsins.
Dagskrá hrossaræktarráðstefnunnar er eftirfarandi:
Sunnudagur 28. nóvember 2021
13:00 Setning – Sveinn Steinarsson formaður fagráðs og FHB
13:10 Hrossaræktarárið 2021– Elsa Albertsdóttir
13.30 Ulrike Nurnus og Susanne Braun – Faraldsfræðileg könnun á kynsjúkdómum hjá íslenskum hestum
14.00 Heiðrún Sigurðardóttir – Erfðafræðilegur grunnur gangtegunda íslenska hestsins
Hlé 14-30-14-45
14:45 Heiðursverðlaunahryssur fyrir afkvæmi 2021
15:15 Verðlaunaveitingar:
-Verðlaun, knapi með hæstu hæfileikaeinkunn ársins (án áverka)
-Verðlaun, hæsta aðaleinkunn ársins – Alhliða hross (aldursleiðrétt)
-Verðlaun, hæsta aðaleinkunn ársins – Klárhross (aldursleiðrétt)
15:45 Heiðursviðurkenning Félags hrossabænda
16.00 Viðurkenningar fyrir tilnefnd ræktunarbú ársins 2021
Fundarslit um 16:30
Allir velkomnir!
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH