„Hún á alveg inni á nokkrum stöðum“

  • 8. ágúst 2023
  • Fréttir
Viðtal við Jakob Svavar Sigurðsson

Þá er dómum kynbótahrossa lokið á Heimsmeistaramótinu. Íslendingar eiga efstu hross í öllum flokkum nema einum og hafa verið margar frábærar sýningar í dag. Kolgrímur Grímsson von Gunvarby hlaut 10 fyrir fet. Sex vetra hryssan, Pála vom Kronshof, vakti mikla lukku eins Sigursson von Hoftúni en hann hlaut m.a. 9,5 fyrir hægt tölt og fegurð í reið. Sigurður Óli Kristinsson sýndi Hraða fra Skovhuset í 9,5 fyrir skeið. Náttdís vom Kronshof og Katla frá Hemlu II hlutu báðar 9,5 fyrir samstarfsvilja.

Eiðfaxi heyrði í Jakobi Svavari Sigurðssyni en hann sýndi hana Hrönn frá Fákshólum sem stendur efst í flokki 6 vetra hryssna. Hrönn hlaut 8,60 í aðaleinkunn og hækkaði frá því á vorsýningu á Íslandi.

„Ég var með nokkuð góða tilfinningu fyrir þessu. Hún er búin að vera ótrúlega slök og hefði kannski mátt beita sér örlítið meira. Hún á alveg inni á nokkrum stöðum eins og á tölti miðað við sýninguna í dag. Hún getur betur á öðrum stöðum líka t.d. skeiðað betur en hún gerði í dag. Hvort það er nóg til að hækka einkunnina er annað mál,“ segir Jakob en Hrönn hlaut m.a. 9,0 fyrir stökk, hægt stökk, samstarfsvilja og fegurð í reið.

„Völlurinn er býsna góður. Hann er aðeins farinn að losna í köntunum en ég hef það mikla stjórn á henni að ég átti ekki í vandræðum með að ríða henni eftir miðjunni, svo það kom ekki að sök,“ segir Jakob sem þykr mótssvæðið yfirhöfuð vera mjög gott. „Ef ég á að setja út á eitthvað þá vegna þess hversu mikið það hefur rignt að þá hafa ekki verið nógu góðar aðstæður til að þjálfa. Það er eiginlega bara upphitunarvöllurinn og smá gata sem við höfum. Annað kemst maður ekki og grasið er blaut þannig að maður ríður ekki á því. Þetta truflaði okkur samt ekki mikið í undirbúningum en getur örugglega truflað einhverja,“ segir Jakob að lokum.

Yfirlit fer fram á morgun kl 16:00 (14:00 á ísl.tíma) á 5 og 6 vetra hrossunum en á fimmtudaginn kl. 17:00 (15:00 á ísl.tíma) á 7 vetra og eldri hrossunum

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link