Hún verður að hafa hljótt yfir fréttunum..
Á ferð sinni um Víðidalinn rakst Eiðfaxi á Jón Helga Haraldsson þekktan húmorista meðal hestamanna…
Vel lá á Jóni eins og fyrri daginn og var hann að huga að hesthúsi sínu.
„Ég var að setja nýja múrhúð á gaflinn, þetta verður að vera í lagi“ sagði Jón og virti fyrir sér framkvæmdirnar.
„Annars er ég að fara í vor uppí Borgarfjörð að hitta gamla skólafélaga frá Hvanneyri. Mig vantar eiginlega konu og er að kíkja í kringum mig. Vandamálið er að ég er með sérþarfir og ákveðnar reglur sem ekki má brjóta. Konan verður að vera mörgum góðum kostum búin, hún verður að vera hugguleg, og helst ekki langt yfir kjörþyngd, hún verður að hafa hljótt yfir fréttunum og helst ekki ryksuga þegar ég er heima, og best væri ef að hún færi í heimsókn til mömmu sinnar þegar enska knattspyrnan er í sjónvarpinu“ segir Jón og skellihlær.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH