Hvað er verið að borga í sýningargjöld í Evrópu?

  • 5. apríl 2020
  • Fréttir

Í ljósi virkar umræðu um sýningargjöld og kynbótadóma hér á landi kveiknaði áhugi Eiðfaxi á því að athuga hvað sambærileg þjónusta kostaði í öðrum aðildarlöndum FEIF þar sem fram fara kynbótadómar á íslenska hestinum. Sendi blaðamaður í kjölfarið póst á ræktunarleiðtoga hvers lands og fékk hjá þeim upplýsingar um kostnað.

Flest verðin eru miðuð við árið 2019 því ekki hefur verið gefið út hvert sýningargjaldið í ár.

Verðskrá Danmörk – árið 2019
Stoðhestar: 3 og 4 vetra, eingöngu sköpulagsdómur.  41.840 kr isk
Hryssur, 3 og 4 vetra, eingöngu sköpulagsdómur        31.380 kr isk
Stoðhestar, 4 vetra og eldri, fullnaðardómur                 62.760 kr isk
Hryssur og geldingar, 4 vetra og eldri fullnaðardómur 48.116 kr isk

Verðskrá Þýskaland – árið 2019
Hryssur og geldingar, fullnaðardómur 20.311 kr isk + gjöld
Stóðhestar, fullnaðardómur,                26.560 kr isk + gjöld
Byggingardómur                                      10.142 kr isk + gjöld

Ofan á þennan kostnað bætist við gjald bæði frá IPZV og FEIF

IPZV
Stóðhestar, fullnaðardómur: 3.906 kr isk
Hryssur og geldingar, fullnaðardómur: 2.343 kr isk

FEIF
Stóðhestar, hryssur, geldingar 1.562 kr isk
Svo þurfa þeir sem taka þátt í kynbótasýningum að borga 6.200 kr isk þátttökugjald og fyrir að girða af smáhólf fyrir hrossin á meðan á sýningunni stendur. Stóðhestar eru venjulega í stíum á húsi eða í tjaldi og eigendur verða að borga 18.000 kr isk.

Svíþjóð Verðskrá – árið 2020
Stóðhestur,fullnaðardómur, 53.000 kr isk
Hryssa, fullnaðardómur, 17.500 kr isk

Innifalið í þessu verði er hesthúspláss með spæni frá því daginn fyrir sýningu og þar til yfirlitssýningu lýkur. Ef frá er talinn kostnaður vegna hesthúsplássins er því sýningargjaldið 39.000 kr isk á stóðhest og c.a. 3.500 kr isk á hryssu en sýningargjöld fyrir þær eru niðurgreiddar til að fá sem flestar hryssur til dóms.

Noregur verðskrá árið 2019
Fullnaðardómur: 40.050 kr isk.
Þess að auki þarf að borga 3.400 kr isk á daginn fyrir pláss í hesthúsi á sýningarstað.

Ísland verðskrá 2019
Fullnaðardómur: 26.000 kr isk
Sköpulagsdómur eða eingöngu reiðdómur: 20.500 kr isk

 

Miðað við gengi íslensku krónunnar þann 3.apríl 2020.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar