Hvað stóð upp úr árið 2016?
Nú þegar árið 2016 er senn á enda og árið 2017 að taka við þá ákvað blaðamaður Eiðfaxa að spyrja hestamenn hvað stóð upp úr í hestamennskunni á þessu ári.
Hver er hestamaðurinn?
Marjolijn Tiepen hrossaræktandi í Árbæjarhjáleigu II og gæðingadómari
Hvað er eftirminnilegast í hestamennskunni árið 2016?
Fyrst ber að nefna hversu mikill fjöldi er orðinn til af úrvalshrossum. Ég dæmdi marga gæðinga á síðastliðnu landsmóti þar sem breiddin var mikil. Þegar ég leiði hugann að því hvað er eftirminnilegast þá stendur upp úr sýningin á Frama frá Ketilsstöðum undir stjórn Elinar Holst í ræktunarbúsýningu Syðri-Gegnishóla/Ketilsstaðir. Og þá sérstaklega að hesturinn hafði farið í gegnum A-úrslit í B-flokk rétt áður og bætti í.
Hver er hestamaðurinn?
Ólafur Andri Guðmundsson tamningamaður og bústjóri á hrossaræktarbúinu Feti
Hvað er eftirminnilegast í hestamennskunni árið 2016?
Fyrir mér stendur upp úr frábært landsmót hestamanna að Hólum í Hjaltadal þar sem gæði og mikil breidd gæðinga fór saman við skemmtilegt svæði. Það verður lengi í minnum haft hversu frábær kynbótahrossin á mótinu voru og hversu harður slagur það var að koma kynbótahrossum inn á mótið, sökum fjöldatakmarkanna, og þá sérstaklega í elsta flokki stóðhesta.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH