Hvar voru nýju spjöldin?
Það hefur varla farið fram hjá hestamönnum að alþjóðasamtök Íslenska hestsins, FEIF, tileinkar árinu 2012 fyrirmyndar reiðmennsku. Meðal þess sem FEIF hefur hvatt til er að knöpum sé umbunað fyrir fallega reiðmennsku á mótum.
Því má dómari í íþróttakeppni nú, samkvæmt keppnisreglum FEIF, lækka einkunn um allt að 2,0 og hækka um 0,5 fyrir reiðmennsku. Dómarar eru beðnir um að gera grein fyrir því á skýran hátt þegar þeir nýta þennan þátt dómskalans. Tvö ný spjöld hafa verið tekin til notkunar til að gefa þetta til kynna; annað með plús merkingu og hitt með mínus merkingu.
Töltið er eina keppnisgreinin sem flokkast sem íþróttakeppni á landsmóti. Því höfðu dómarar í gærkvöldi leyfi til að nýta plús og mínus spjöld til að hygla og refsa fyrir reiðmennsku. Sigurður Sæmundsson kynnir í gærkvöldi er fulltrúi íslendinga í íþróttanefnd FEIF sem hafði frumkvæði að þessari nýju stefnu. Hann minnti áhorfendur á nýja kerfi í upphafi forkeppninnar. Spjöldin voru hins vegar aldrei notuð.
Í samtali við íþróttadómara í morgun sögðu þeir að spjaldnotkunin væri vandmeðfarin. Í gær hefðu keppendur sýnt flotta reiðmennsku en ekki hefði verið ástæða til að hampa tilteknum reiðmönnum.
Úrslitakeppni töltsins er framundan og verður gaman að sjá hvort hin nýju spjöld fái þá að líta dagsins ljós, áhorfendum til glöggvunar um hvernig reiðmennsku dómarar telja til fyrirmyndar.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH