Hver verður fyrstur til að verða Norðurlandameistari í Gæðingakeppni ?
Norðurlandamót í gæðingakeppni verður haldið 13. – 15. september í Biri í Noregi. LH mun taka við umsóknum frá áhugasömum keppendum á netfangið [email protected] en hvert land má senda 10 fullorðna í A og B flokk, 8 ungmenni og 6 unglinga en einnig verður keppt í skeiði, 100m flugskiði, 150m og 250m. skeiði.
Bæði Svíþjóð og Danmörk eru byrjuð að skipa í sín lið og munu Norðmenn nota gæðingakeppni sem verður haldi í Osló í ágúst sem úrtökumót fyrir sína keppendur.
Hestamannafélagið í Hamar, Sleipnir er aðal driffjöðurinn á bak við þetta mót ásamt öðrum hestamannafélögum. Með þessu móti eru norðmenn að halda upp á að 20 ár eru liðin frá því að fyrsta gæðingakeppnin var haldin í Noregi.
Mikill metnaður er í Norðmönnum um að auka hróður gæðingakeppninar en mikið hefur verið talað um það hér heima að efla þurfi gæðingakeppni erlendis. Norðmenn leggja hart að sér að undirbúa mótið og verður það eflaust með þeim flottustu sem haldin eru í Noregi en m.a. eru þeir í viðræðum við norska sjónvarpið um umfjöllun og einnig er stefnt að því að hafa vegleg peningaverðlaun fyrir efstu sætin.