Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum Hverjir vinna í Meistaradeildinni?

  • 13. apríl 2023
  • Fréttir
Spekingar spá í spilin fyrir lokakvöld Meistaradeildarinnar í hestaíþróttum

Lokakvöld Meistaradeildar Líflands í hestaíþróttum er á morgun, föstudag. Af því tilefni fékk blaðamaður Eiðfaxa nokkra hestamenn til þess að spá í spilin með sér um hvaða knapar og hestar yrðu í úrslitum á lokakvöldinu og hvaða lið og knapi stæðu uppi sem sigurvegarar deildarinnar.

Baldvin Ari Guðlaugsson, tamningamaður og hrossaræktandi

Topp 6 í tölti

Viðar Ingólfsson – Þór frá Stóra-Hofi
Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir – Flóvent frá Breiðsstöðum
Árni Björn Pálsson – Kastanía frá Kvistum
Ragnhildur Haraldsdóttir – Úlfur frá Mosfellsbæ
Jakob Svavar Sigurðsson – Skarpur frá Kýrholti
Teitur Árnason – Dússý frá Vakurstöðum

Topp 6 í skeiði

Benjamín Sandur Ingólfsson – Fáfnir frá Efri-Rauðalæk
Konráð Valur Sveinsson – Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu II
Daníel Gunnarsson – Kló frá Einhamri 2
Árni Björn Pálsson – Ögri frá Hólum
Mette Mannseth – Vivaldi frá Torfunesi
Gústaf Ásgeir Hinriksson – Sesar frá Rauðalæk

Liðakeppnin – Top Reiter

Einstaklingskeppnin – Árni Björn 🤷‍♂️

Þórarinn Eymundsson, reiðkennari, knapi og hrossaræktandi

Topp 6 í tölti – enginn ákveðin röð

Árni Björn Pálsson – Kastanía frá Kvistum
Ragnhildur Haraldsdóttir – Úlfur frá Mosfellsbæ
Mette Mannseth – Staka frá Hólum
Jakob Svavar Sigurðsson – Skarpur frá Kýrholti
Páll Bragi Hólmarsson – Vísir frá Kagaðarhóli
Viðar Ingólfsson – Þór frá Stóra-Hofi

Topp 6 í skeiði – enginn ákveðin röð

Konráð Valur Sveinsson – Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu II
Daníel Gunnarsson – Kló frá Einhamri 2
Árni Björn Pálsson – Ögri frá Hólum
Jakob Svavar Sigurðsson – Jarl frá Kílhrauni
Benjamín Sandur Ingólfsson – Fáfnir frá Efri-Rauðalæk
Mette Mannseth – Vivaldi frá Torfunesi

Liðakeppnin – Top Reiter

Keppnin er virkilega spennandi en það er allt opið í þessu, sérstaklega liðakeppninni. Top Reiter eru mjög líklegir. Í skeiðinu verða þeir í efstu sætum. Ég sé að Teitur tekur ekki merina sem klikkaði í fyrra og fer öruggu leiðina og tekur Styrk, svo eru Konni og Árni þarna öskufljótir. Það er spurning hvað Gagnhestar/Margrétarhof gera í skeiðinu. Ég þekki ekki almennilega hrossin en á tölt vængnum reikna ég með að þau verði sterk. Ragga er með Úlfinn, Aðalheiður með Flóvent og spennandi að sjá hvað Glódís gerir. Þar er Árni Björn líka mjög öflugur og maður reiknar með að Teitur gerir gott mót þó hann sé á óreyndu hrossi. Ég held að baráttan sé þarna á milli þessara tveggja liða en Top Reiter vinni þetta.

Einstaklingskeppnin – Árni Björn

Aðalheiður verður held ég í kringum 10 sætið í skeiðinu. Kannski að narta í tíunda sætið. Ef að Árni nær topp fimm í skeiðinu og er í fyrsta eða öðru sæti í töltinu þá held ég að hann sé sigurstranglegastur. Sara mun gefa eftir núna í þessum tveimur greinum. Þetta verður á milli Aðalheiðar og Árna og tippa ég á hann. Reikna með að Kastanía sé enn öflugri en í fyrra og sigurvegarinn frá því í fyrra er ekki með svo hann á meiri séns á að vera í toppsætinu. Til að Aðalheiður hafi þetta verður hún að setja í fluggírinn í skeiðinu og eiga alveg svaða sýningu á Flóvent. Það er auðvitað allt hægt en ég tippa á Árna.

 

Einar Ásgeirsson, hestamaður og fóðurfræðingur Fóðurblöndunnar

Topp 6 í tölti – enginn ákveðin röð

Árni Björn Pálsson – Kastanía frá Kvistum
Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir – Flóvent frá Breiðstöðum
Ragnhildur Haraldsdóttir – Úlfur frá Mosfellsbæ
Jakob Svavar Sigurðsson – Skarpur frá Kýrholti
Teitur Árnason – Dússý frá Vakurstöðum
Mette Mannseth – Staka frá Hólum

Topp 6 í skeiði – enginn ákveðin röð

Konráð Valur Sveinsson – Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu II
Daníel Gunnarsson – Kló frá Einhamri
Árni Björn Pálsson – Ögri frá Hólum
Jóhann Kristinn Ragnarsson – Þórvör frá Lækjarbotnum
Flosi Ólafsson – Orka frá Breiðabólsstað
Sigurður Vignir Matthíasson – Alda frá Borgarnesi

Liðakeppnin – Auðsholtshjáleiga

Ég ætla að giska að Auðsholtshjáleigu liðið hafi þetta óvænt út á skeiðið.

Einstaklingskeppni – Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir

Held að Aðalheiður taki þetta en Árni Björn mun komast nærri því.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link