Hýruspor opnar heimasíðu
Hýruspor samtök um hestatengda þjónustu á Norðurlandi vestra sem stofnuð voru í janúar sl. hafa nú opnað heimasíðu www.icehorse.is . Þar er m.a. að finna flokka yfir þá þjónustu sem meðlimir Hýruspors bjóða upp á .
Hýruspor eru samtök sem ætla sér stóra hluti í framtíðinni til að efla hestatengda þjónustu á Norðurlandi vestra með samtakamætti sínum.
Jón Þór Bjarnason á Sauðárkróki hefur starfað fyrir samtökin og er heimasíðan m.a. afrakstur þeirrar vinnu. Þá hafa samtökun ráðið Halldór Þorvaldsson til að vinna að markaðstarfi o.fl.
Stjórn Hýruspors skipa: Páll Dagbjartsson Varmahlíð formaður, Jón Gíslason Hofi gjaldkeri, Jóhann Albertsson Gauksmýri ritari og meðstjórnendur eru Hjörtur Karl Einarsson Blönduósi og Arna Björk Bjarnadóttir Ásgeirsbrekku.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH