Í kjölfar óveðurs

  • 23. desember 2019
  • Fréttir
Sveinn Steinarsson formaður Félags hrossabænda sendir félagsmönnum og hestamönnum öllum kveðju

 

Óhætt er að segja að reynt hafi á hrossabændur á norðurlandi í þar síðustu viku, er snarvitlaust veður og hin verstu skilyrði herjuðu á menn og skepnur og allar aðstæður urðu nær fordæmalausar. Nú þegar verður er gengið niður og venjulegar vetraraðstæður taka við, þá blasir við að víða hefur orðið mikið tjón og hross drepist, tjónið er því bæði tilfinningalegs og fjárhagslegs eðlis. Það er erfitt að máta sig við þær aðstæður sem fólk var í þegar á tímabili var ekki í mannlegu valdi að fást við aðstæður sökum veðurofsans.

Í umræðum síðustu daga hefur margt komið fram í sambandi við það hvernig best sé að undirbúa sig og sín hross undir óveður af þessu tagi, sem hrossabændur eru auðvitað vanir að gera. Í  því samhengi er auðvitað mikilvægast að hross sem eiga að vera á útigangi komi sælleg undan sumri og hausti til að geta verið úti yfir veturinn. Þá hefur umræða síðustu daga einnig snúist um hvort eðlilegt sé að hross séu höfð úti að vetrarlagi, sem ekki er óeðlilegt í ljósi aðstæðna, og þá sér í lagi hjá fólki sem ekki þekkir til hrossahaldsins en ákveðin tilhneiging er til að leggja að jöfnu hross og annan búfénað sem venja er að  hýsa yfir veturinn.

Hross geta verið úti að vetrarlagi enda hafa þau þróað með sér þann eiginleika öldum saman. Það þarf vitanlega að fylgjast vel með hrossunum, þau þurfa að hafa nægt fóður og aðgang að vatni og skjól  en ákveðin rammi er varðar meðferð hrossa á útigangi er í reglugerð um velferð hrossa. Reglugerð nr. 910/2014 um velferð hrossa

Vissulega þarf stundum að bregðast við og taka inn einstaka hross en þau eru misjafnlega til þess fallin að standa af sér vetrar veðrin, því er alls ekki er hægt að ætla öllum hrossum að vera úti yfir veturinn. Aðalatriðið er að fylgst sé með hrossum, hrossabúskapur verður ekki stundaður öðruvísi en að stóð sé haldið úti líkt og verið hefur. Það er óhugsandi og ógerlegt að hýsa allt uppeldi og fylfullar hryssur enda fer á allan hátt betur um hrossin úti.  Það eru margir miður sín eftir þær hamfarir sem gengu yfir landið sem skiljanlegt er, fólk missti hross og setti sig í hættu við að bjarga því sem bjargað varð. Við breytum ekki því sem orðið, þessi erfiða uppákoma verður reynsla sem mun hjálpa okkur við að takast á við óveður framtíðarinnar.  Þegar er unnið að samantekt sem er ætlað að gefa sem besta mynd af þeim áhrifum sem óveðrið  hafði og hvað megi læra af þessari erfiðu uppákomu.

Ágætu félagsmenn ég sendi ykkur og hestamönnum öllum innilegar jóla og hátíðarkveðjur, sérstakar samúðarkveðju fá þeir sem lentu í áföllum vegna óveðursins sem gekk yfir landið í síðustu viku.

Sveinn Steinarsson , form Félags hrossabænda

 

 

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link